Um okkur
Markmið
Efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Ítalíu og Íslands. Samþykktir ráðsins
má finna hér
Stjórn
Formaður: Guðjón Rúnarsson, Samtök fjármálafyrirtækja /
Icelandic Financial Services Association.
Aðrir stjórnarmenn:
Ársæll Harðarson, Icelandair
Benedetto Valur Nardini, BBA Legal
Eva Maria Þorarinsdóttir, Trúnó/Pink Iceland
Eygló Björk Ólafsdóttir. Móðir Jörð, Egilstöðum
Gianluca Eminente Unifrigo Gadus, Napoli.
Guðrún Sigurðardóttir, Island Tours, Lecco
Jón Þór Grímsson, Landsbankinn
Sigurður Þorsteinsson. Designgroupitalia, Milano
Valdimar Haukur Hilmarsson, Íslandsbanki
Helstu verkefni
Standa að fundum og ráðstefnum um málefni er tengjast viðskiptum á milli landanna.
Skipuleggja heimsóknir aðila úr viðskiptalífi annars ríkisins til hins.
Að vaka yfir viðskiptalegum hagsmunum félaga sinna jafnt hjá ítölskum sem íslenskum yfirvöldum og opinberum stofnunum.
Veita beina þjónustu skv. ákvörðun stjórnar hverju sinni, s.s. varðandi upplýsingar um viðskiptasambönd, aðstoða við að koma á tengslum milli fyrirtækja, og að safna og miðla upplýsingum um viðskiptalíf landanna.
Félagar
Einstaklingar með íslenskan eða ítalskan ríkisborgararétt eða einstaklingar sem reka atvinnustarfsemi með staðfestu í öðru hvoru ríkjanna.
Lögaðilar með staðfestu eða verulegan hluta atvinnustarfsemi sinnar í öðru hvoru ríkjanna.
Heiðursfélagar skv. ákvörðun aðalfundar í samræmi við tillögu stjórnar.
Félagsgjöld
IKR 25.000 / € 250
Aðsetur
Húsi verslunar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík.
Fyrirspurnir: kristin@chamber.is





